Eitt tímabil tekur enda og annað hefst

Andrésar andar leikunum var slitið á föstudagskvöldið eftir 2 frábæra daga í brekkunum.

En þeim lauk svona snemma þar sem að þeim var flýtt sökum slæmrar veðurspár á laugardeginum og ekki var útlit fyrir að hægt yrði að keppa í alpagreinum, sem varð raunin.

En með slitum á Andrésar andar leikunum þetta árið er skíðatímabilinu formlega lokið.

Á síðu Skíðafélags Akureyrar er hægt að sjá úrslit leikana.

En núna þessa sömu helgi hófst keppnistímabilið í SKEET með landsmóti sem að haldið var í Hafnarfirði. 12 keppendur mættu til leiks á þetta fyrsta mót tímabilsins og er hægt að sjá úrslitin hérna.

Leave a Reply

Your email address will not be published.