Íþróttafélög, klúbbar og hópar

Nú förum við að skipta um tímabil eina ferðina enn. Sumarið er brátt á enda og haustið og veturinn taka við. Og meiri áhersla hjá öllum fer að verða á vörur tengdar vetri en það þýðir ekki að við pökkum öllum hinum vörunum okkar niður.

En nú fara vetrarvörurnar að týnast í hús á haustmánuðunum og senn fer að líða að jólum. Það er alltaf betra að dreifa gjafakaupunum aðeins yfir árið og létta undir með manni í kringum jólin.

Við hjá Sportvík erum alltaf tilbúin að kíkja í heimsókn til ykkar með vörurnar okkar. Ef þið hafið áhuga á að fá okkur til ykkar með kynningu á okkar vörum og fá þá í leiðinni tækifæri til að versla af okkur endilega hafið þá samband við okkur og við finnum tíma sem að hentar sem flestum.

Vöruvalið okkar getið þið skoðað inn á www.sportvik.com nýjar vörur eiga eftir að koma inn á síðuna en fylgist endilega með. Einnig munum við fljótlega fara að gera pláss fyrir nýjar vörur og verða valdar vörur frá því í fyrra á tilboði. Ekki missa af því.

Leave a Reply

Your email address will not be published.