Hvað býður Sportvík upp á í skotveiði vörum

Sportvík er lítið fjölskyldu fyrirtæki sem að hóf starfsemi sína á Dalvík árið 1981. En það var ekki fyrr en árið 2012 sem  fyrirtækið kom inn á skotveiðimarkaðinn og flutti þá aðstöðu sína á Blönduós.

Eins og staðan er í dag er fyrirtækið með vefverslun  www.sportvik.com ,en einnig er hægt að koma til okkar á Blönduós og fá að kíkja á þær vörur sem boðið er uppá, þá heldur Sportvík úti öflugri facebook síðu.

Margar vörur eru til á lager en einnig sinnum við ýmsum  sérpöntunum fyrir viðskiptavini okkar.  Þrátt fyrir stuttan tíma á markaðinum þá höfum við náð í góð og þekkt merki og ætlum við að kynna nokkur þeirra fyrir ykkar hérna.

 

BRILEY þrengingar og aukahlutir

Briley fyrirtækið er án efa þekktasti framleiðandi á þrengingum í haglabyssur í heiminum í dag, úrvalið er gríðarlegt,allt frá hefðbundnum „flush“ þrengingum upp í „portaðar og „titanium“ þrengingar og hinar nýstárlegu „Helix“ þrengingar,en hönnun þeirra gerir það að verkum að ákoma hagla verður jafnari en með hefðbundnum þrengingum.

http://www.briley.com/helixpromotion.aspx

 

HiViz sigti

HiViz býður uppá mikið úrval af sigtum á allar gerðir skotvopna,bæði sigti sem koma í stað upprunalegu sigtanna og einnig sigti sem smellt er á hlauplistann og haldast föst með segli.

Ef ykkur vantar sigti þá er næsta víst að við eigum það sem hentar eða getum útvegað það..

http://www.youtube.com/watch?v=Fc5QKUrdC6w&list=PLzknDnq_wWWMjVBO5JgJ0HoGm-rHXiItv

http://www.youtube.com/watch?v=OzDoQcWJVMc&list=PLzknDnq_wWWMjVBO5JgJ0HoGm-rHXiItv

TopGun

Frá TopGun  erum við til dæmis með byssupoka með axlarólum, burðarólar sem taka 8-12 gæsir,skotvesti og  skotgleraugu í ódýrari flokknum. Gleraugum frá Top Gun eru  létt og þægileg og henta fyrir flesta. Mismunandi gerðir og gott litaval á glerjum sem henta vel við flestar aðstæður. Hægt er að fá gleraugu með spöng fyrir þá sem að nota sjóngleraugu. Þá er sjóngler sett í spöng sem er síðan smellt inn í gleraugun.

Hreinsisett frá Megaline

Við erum með gott úrval af hreinsisettum,hreinsistöngum og einnig erum við með bursta og þess háttar hluti sem við seljum í stykkjatali,óþarfi að kaupa heilt sett ef aðeins vantar einn bursta. Þá erum við einnig með „snapcaps“ í öll helstu riffilkaliber s.s. 223,243,270,308 og í haglabyssur ga.12 til 410.

 

 Negrini

Byssutöskurnar frá Negrini á Ítalíu eru líklega þær mest seldu í heimi en Negrini sér flestum stærstu skotvopnaframleiðendum fyrir töskum þ.á.m. Beretta,Benelli ,Browning,Perazzi og ótal mörgum fleiri.

Ef þú átt byssu þá framleiðir Negrini tösku sem hún passar í.

Endilega kíkið á síðuna hjá okkur og skoðið úrvalið.

Leave a Reply

Your email address will not be published.