Andrésar andar leikarnir

Jæja þá er alveg að líða að stærsta skíðaviðburði ársins, aðeins 2 dagar.

Síðustu vikur höfum við hjá Sportvík verið á kafi í því að búa til góð tilboð til að bjóða á vörum okkar svona í lok tímabilsins.

Einnig munum við kynna nýjar vörur fyrir næsta tímabil í básnum okkar í Íþróttahöllinni á Akureyri og taka niður pantanir frá fólki í næsta árs vörur.

Á meðan á Andrésar leikunum stendur munum við loka skíðavöruhlutanum í vefversluninni okkar en að þeim loknum mun hún opna aftur með sömu tilboðum og við munum bjóða upp á í Höllinni.

Hlökkum til að sjá sem flesta í Íþróttahöllinni á Akureyri 23-26 apríl

Leave a Reply

Your email address will not be published.